Við fórum í Kringluna í dag að syngja í búðunum. Eða sko stelpurnar sungu ekki ég :-)
Áróra var Hermione (stelpan í Harry Potter) og Kolla og Inga María voru bangsar. Kolla fékk bangsabúning frá Stellu ömmu og Inga María var í bangsafötum sem Kolla fékk frá Ásmundi og Hörpu þegar hún var lítil. Þær voru mjög fínar allar saman. Kollu og Áróru fannst mjög gaman í Kringlunni. Kolla söng að vísu aðalega í röðinni "Allir krakkar" (hún kann sko ekki meira í laginu) og svo þegar komið var að þeim að syngja þagnaði hún og rétti bara fram nammipokann. Áróra söng þá fyrir þær báðar og svo fengu þær nammi. Inga María var hin ánægðasta í magapokanum sínum að skoða fólkið.
Við enduðum svo á Mcdonalds að borða og Kolla kláraði meira að segja matinn sinn þrátt fyrir nammiátið.
Áróra fór svo á öskudagsball upp í skóla og skemmti sér vel þar líka. Hún vildi svo fara líka í Smáralindina (skemmtun þar 2-5) en mamma hennar var búinn að fá nóg og klukkan líka orðin 4 þannig að við hefðum varla náð í neytt.
Mamma á svo afmæli í dag svo við sungum fyrir hana í bílnum á leiðinni heim úr Kringlunni (mamma var sko í gsm símanum) og förum í mat til þeirra annað kvöld.
Svo verð ég að segja eina sögu frá göngutúrnum um daginn sem ég gleymdi að skrifa um daginn. Kolla var alltaf að stoppa og við að kalla á hana og í eitt sinn þegar Matti kallar Kolbrún komdu nú þá lítur hún á hann og segir hátt ÉG HEITI KOLLA :-) okkur fannst þetta ferlega fyndið hún heitir sem sagt ekki Kolbrún heldur Kolla ekki von að barnið þekki neytt annað enda notum við alltaf bara Kolla en ekki Kolbrún.