Við erum nú búinn að
Við erum nú búinn að gera ýmislegt í þessari viku sem ég hef ekkert skrifað. Á sunnudaginn fórum við í heimsókn til Ásmundar og Hörpu og skoðuðum nýja húsið þeirra. Það er mjögflott og sérstaklega fannst mér eldhúsinnréttingin þeirra æðisleg. Hlakka til þegar við förum að endurnýja eldhúsið okkar hvenær sem það verður svo!!
Á mánudag komu Fjóla og Emil í heimsókn. Það var gaman að hitta þau og sjá Fjólu ólétta :-) það var sko ekki farið að sjá á henni þegar ég sá hana síðast sem segir ýmislegt um það hversu langt er síðan ég sá hana síðast en hún er komin 6 mánuði á leið. Kolla ætlaði nú alveg að éta Fjólu og vildi að hún væri stanslaust að leika við sig.
Í gær fórum við í mömmumorgun í Kirkjunni en eftir hádegið var ég voðalega slöpp. Ég vona að þetta hafi verið bara eitthvað tilfallandi og verði ekkert meira nenni ekki að vera veik!!
En Stebbi bróðir á afmæli í dag.
Til hamingju með afmælið Stebbi
og við ætlum að fara í afmælismat til hans í kvöld. Hlakka til að sjá hvað "litli" bróðir bíður upp á :-)
Nú er Inga María orðin 3ja mánaða (reyndar fyrir 4 dögum) og ætla ég því að skrifa smá um hvað er að gerast hjá stelpunum.
Inga María:
Hún hefur náttúrulega breyst mikið á síðasta mánuðinum og tekur stanslausum framförum. Hún heldur höfðinu orðið mjög vel og vill helst vera í sitjandi stöðu í fanginu á manni ekkert vera að liggja eins og smábarn!! Hún er farinn að beita höndunum og getur komið við þá hluti sem hún vill en er ekki farinn að opna lófann til að taka hluti ennþá. Hún tekur samt utan um bangsa sem meður réttir henni og treður þeim upp að munninum. Hún réttir vel úr sér þegar hún liggur á maganum og getur losað aðra hendina til að leika sér með dót sem ég set fyrir framan hana. Henni finnst gaman að liggja stutta stund (kannski 5 mín) á maganum og leika sér sem er eitthvað sem Kolla þoldi aldrei. Hún getur velt sér yfir á hliðarnar þegar hún lliggur á bakinu en ekki alla leið samt ennþá. Hún er mjög brosmild og finnst mjög gaman þegar stóru systur hennar leika við hana. Nú er hún samt orðin óróleg svo ég ætla að sinna henni og stelpunni sem er að reyna að klifra upp í fangið á mér :-) Skrifa um Áróru og Kollu á eftir.
Posted by gydaa at February 20, 2002 09:48 AM