Ég átti eftir að skrifa
Ég átti eftir að skrifa um Áróru og Kollu mmm ætlaði víst að gera það á eftir fyrir hálfum mánuði síðan!!!
Kolla:
Kollu er mikið að fara fram í máli finnst okkur. Hún hefur nú alltaf talað mikið en nú er maður farinn að skilja meira og meira af því sem hún segir. Hún er samt orðin alveg voðaleg snuddu stelpa og tekur snuðið helst ekki út úr sér þannig að stundum getur verið erfitt að skilja hana. Hún er farinn að leggja sig aftur á daginn en fer reyndar eitthvað seinna að sofa á kvöldin í staðinn fer doldið eftir því hvenær hún vaknar og hvenær hún leggur sig. Ég reyndi nú samt að láta hana vakna eftir ca 1 og hálfan tíma en ef Inga María er líka sofandi þegar 1 og hálfur tími er eftir þá vek ég hana nú ekki heldur nýt þess að hafa smá stund út af fyrir mig :-) en það gerist svo sem sjaldan.
Áróra:
Áróru gengur voðalega vel í skólanum eins og alltaf. Hún var að fá einkunnirnar sínar og voru þær svona:
Íslenska 9
Lestur 8
Skrift Ágætt
Stærðfræði 8
Smíðar Ágætt
Uppl.- og tæknim. Ágætt
Umsögnin var svo: Mjög getumikill nemandi en heldur masgefin í tímum.
Ekki get ég nú sagt að þetta hafi komið mikið á óvart :-) Hún þarf sem sagt að vanda sig við að tala minna og að vera kurteisari við skólasystkynin sín. En að öðru leiti gengur henni vel og henni er farið að líða mjög vel í Ölduselsskóla og á fullt af vinum hér. Hún leikur mest við Hrafnhildi, Lydíu og Ingibjörgu.
Posted by gydaa at March 06, 2002 09:20 AM