March 12, 2002
Áróra fór í skólann í

Áróra fór í skólann í morgun en mér fannst hún samt hósta doldið mikið í nótt. Hún tók síðasta pensilín skammtinn sinn í morgun og erum við báðar fegnar að þetta pensilín sé búið. Hún kvartar og kveinar yfir hverjum einasta skammti enda er þetta alveg einstaklega bragðvont pensilín. Ég vakti hana um miðnætti í gær til að gefa henni hóstasaft hún húðskammaði nú mömmu sína fyrir að vekja sig!! en tók hóstasaftið. Ég sendi hana með miða til kennarans um að hún væri inni í fríminotum og að hún færi ekki í sund. Vonandi er þessi pest þá búinn hér á heimilinu.
Ég er búinn að vera að reyna að kynna mér svona rörísetningar hjá vinkonum mínum og sýnist að best sé að senda Kollu í þetta á morgun. Læknirinn hringir samt ekki fyrr en í kvöld svo ef þið hafið einhverjar hugmyndir af spurningum þá má endilega senda mér þær í tölvupósti. Póstfangið mitt er gydaa @ simnet.is þetta á samt að vera allt í einni lotu sko en Matti sagði að ég ætti að skrifa þetta svona svo ég fái ekki ruslpóst því það séu einhverjir sem leiti að póstföngum á netinu til að senda ruslpóst!!
Þá erum við farnar í mömmumorgnana í kirkjunni enda erum við svo kirkjurækin fjölskylda eins og þið vitið :-)

Posted by gydaa at March 12, 2002 09:11 AM
Comments