Við fórum í afmæli til pabba í gærkvöldi og það var mjög gott að komast út. Inga María var nú samt voðalega pirruð en er mikið betri í dag. Við vorum ekki komnar heim fyrr en rétt fyrir 10 og svo voru allir rifnir upp snemma í morgun því Áróra var að kynna þemaverkefnið sitt í skólanum. Áróru gekk mjög vel með það og stóð sig mjög vel. Þemaverkefnið þeirra var Kína og las Áróra upp ljóð sem hún samdi um kínabarn. Ljóðið er svona:
Barnið í Kína
Það heitir Stína
og systir hennar Nína
Þær búa í Kína
Kolla var nú ekki mjög þæg á kynningunni og vildi alls ekki sitja kjurr. Hún var ýmist að príla upp á stóla, aðra foreldra eða hlaupa til Áróru sem sat með hinum krökkunum fyrir framan alla foreldrana. Ég var nú komin nálægt því að fara út með hana en svo var kynningin búin og hún gat hlaupið um eins og henni sýndist.
Posted by gydaa at March 22, 2002 04:44 PM