Það var alveg yndislegt veður í gær og fórum við mamma í göngutúr um miðbæinn. Við fundum opna búð og keyptum brauð og röltum svo niður á tjörn og gáfum öndunum. Kollu fannst mjög gaman að henda brauði til andann (sem voru nú samt aðalega svanir og gæsir) og rabbaði heilmikið við þær. Sagði þeim að koma og fá brauð og hérna bra bra hérna er brauð. Þetta voru nú ekki mjög svangar endur og var brauð fljótandi um alla tjörn :-) en gaman að gefa þeim engu að síður. Kolla vildi svo helst hlaupa um og áttum við ekkert að halda í hana þó hún stæði á brúninni. Ég setti því á hana beislið úr kerrunni svo ég gæti haldið í hana án þess að hún fattaði það en hún skammaði mig nú fyrir það líka!! Á endanum þurfti ég nú að taka hana og setja í kerruna og labba af stað með hana organdi yfir að mega ekki hlaupa ofan í tjörn eða fyrir bíla!! Hræðileg móðir!!
Inga María svaf nú mest allan tímann í vagninum og lét endurnar ekkert hafa áhrif á sig.
Við hittum Þorgerði, Óttar og dætur (þorgerður lá með mér á fæðingardeildinni eftir að ég átti Áróru) og urðum við sammála um að ég bjóði þeim (sko stelpunum sem lágu saman ekki Þorgerði og co) heim fljótlega. Það er allt of langt síðan við höfum hisst og þær vita ekki einu sinni allar að Inga María sé til !!