Doldið langt síðan ég hef skrifað!!
Við fórum á róló í gær og Kolla skemmti sér nú bara vel innan um krakkana þó að hún talaði nú ekkert við þau. Ég var hjá henni allan tímann og ætla að reyna að fara núna nokkuð þétt til að venja hana við rólóinn. Við erum samt svo mikið á flakki að það liggur við að maður komi ekki rólótíma fyrir í planinu :-) Er að reyna að venja Ingu Maríu við að sofa úti í vagni því mér finnst hún sofa heldur betur þar. Hún tekur sko venjulega bara litla lúra hér og þar yfir daginn en er að reyna að fá hana til að lúra betur og lengur í einu. Ég hef því vakið hana með harðri (ok ekki mjög harðri kannski) hendi þegar hún dettur út af á brjóstinu og ætlar í einn af sínum smá lúrum. Hún vaknar venjulega um átta og hef ég verið að setja hana út um 11. Ég vonast til að hún geti farið í lúr um hálf 11 því þá myndi henta að labba með Kollu út á róló og Inga María sofni í vagninum á röltinu en hingað til hefur hún ekki verið orðin nægjanlega þreytt um hálf 11 finnst mér allavegana er hún doldið lengi að sofna þá en dettur út af um 11 áður en ég næ að breiða yfir vagninn og setja hann út.
Inga María er farinn að geta setið í smá stund!!!! Mér finnst það nú alveg ótrúlegt og lét Matta taka mynd af henni sitjandi í gær svo einhver myndi trúa mér að fjögra og hálfsmánaða barn sitji. Hún vildi þá náttúrulega ekki sitja og henti sér alltaf aftur á bak og Matti hló bara af mér og sagði já já og hún talar líka á meðan ég er í vinnunni er það ekki!!! Svo samþykkti hún að sitja og sat og Matti gat ekkert rökrætt þetta við mig meir og smellti af henni mynd en sú mynd er reyndar ennþá í vélinni. Matti var samt að setja inn nýjar myndir á vefinn okkar svo endilega kíkið á þær.
Kolla er farinn að tala mikið meira og hún segir stannslaust hvað er þetta!! Doldið þreytandi stundum en svona læra börn víst :-) Allavegana lærir hún fullt af orðum með því að endurtaka svörin við hvað er þetta. Hún var reyndar hálf fúl við mig í gær þegar hún benti á mynd af hundi á náttfötunum sínum og sagði hvað er þetta? Voffi sagði ég nei hvað er þetta endurtók hún. Svona gekk þetta nokkrum sinnum og endaði með því að ég sagði hvað er þetta og bendi á hundinn. Hundur sagði Kolla!!!! Vitlausa mamman að segja alltaf voffi þetta var greinilega hundur!!!