April 08, 2002
Við höfðum það bara voða

Við höfðum það bara voða gott um helgina. Mamma og pabbi buðu okkur í humarveislu á laugardagskvöldið og mmmmm ég hef sko aldrei áður borðað mig pakk sadda af humri. Rosalega góður og við torguðum ekki einu sinni öllum humrinum heldur voru nokkrir eftir!!! Stebbi og Matti hjálpuðu mömmu og pabba að hreinsa drasl úr bílskúrnum fyrir matinn og þá gátum við loksins séð sófann sem við ætlum að fá í sjónvarpsherbergið. Hann er bara mjög fínn en vantar virkilega að komast í bað :-) Það var svo sem ekki við öðru að búast eftir að hafa verið lengi úti í bílskúr. Við ætlum því að þrífa hann næstu helgi og flytja hann svo hingað heim.
Á sunnudeginum fórum við í fermingarveislu og borðuðum fullt af góðum kökum mmm namm namm. Á leiðinni heim sofnaði Kolla og Matti hélt á henni inn í rúm en nei nei hún vaknaði klst seinna og fannst þetta bara góður lúr en ekki til í nætursvefn. Hún sofnaði því ekki fyrr en um 10 og þurfti ég að vekja hana í morgun klukkan rúmlega 9. Við fórum í morgun til Sæunnar að hittast nokkrar úr mömmulistanum. Það var fínt að hittast og leifa krökkunum að leika sér. Núna eru báðar stelpurnar sofandi sem gerist nú ekki á hverjum degi svo ég er að reyna að njóta þess :-) Í kvöld er ég svo að fara á kaffihús með börn2001 listanum mínum ví mig hlakkar til að fara aðeins út barnlaus og vonandi verður Inga María þæg og góð við pabba sinn.

Posted by gydaa at April 08, 2002 03:21 PM
Comments