April 10, 2002
Það var mjög hressandi að

Það var mjög hressandi að fara út í fyrrakvöld og hitta stelpurnar. Kaffihúsið var reyndar á endanum heimili Sirrýar þar sem hún fékk ekki pössun en ekki var það verra. Inga María svaf í fanginu á pabba sínum allt kvöldið alger engill.
Við skruppum út á róló áðan og Kolla skemmti sér vel við að leika við hinar stelpurnar þar. Voru reyndar bara tvær aðrar stelpur en það var svo sem ágætt meðan hún er að venjast. Veðrið var reyndar hundleiðinlegt svona íslenskt sýnishornaveður sól, haglél, snjókoma til skiptis. Ég skrapp út í búð og verslaði meðan Kolla lék sér á rólónum en var reyndar ekki nema svona 5-10 mínútur í burtu þar sem búðin er við hliðina á rólónum. Kolla var bara kát með það og tilkynnti rólókonunni að mamma búð kaupa brauð og hélt svo áfram að leika sér. Kannski skil ég hana aðeins lengur eftir á morgun. Ég ætla að reyna að vera dugleg að fara á róló með hana þessa daganna svo hún venjist þar. Er svo erfitt að venja hana við þegar maður fer bara 2 í mánuði!!

Posted by gydaa at April 10, 2002 02:06 PM
Comments