Jæja þá ætla ég að reyna að setja myndir í dagbókina mína alveg sjálf. Önnur myndin er af Ingu Maríu að sitja. Finnst ykkur þetta ekki góð mynd af henni? Það finnst mér. Hún er orðin voðalega dugleg að sitja sjálf og getur orðið sitið og leikið sér á gólfinu eða í leikgrindinni sinni. Þessi nýji hæfileiki gerir það líka að verkum að hún getur sitið og leikið sér við stóru systur sína eins og sést á hinni myndinni. Þær eru ótrúlega góðar saman miðað við hvað Inga María er lítil. Kolla rífur nú samt doldið mikið af henni með látum svo Inga María dettur um koll en þá reinir Kolla bara að tosa hana upp aftur mmm sem gengur nú ekkert of vel en mamma kemur þá bara til bjargar.
Ingu Maríu finnst líka voða fjör að sitja í matarstólnum og horfa á okkur borða. Hún fær AD vítamíndropana sína úr skeið og galopnar munninn og finnst fjör að borða þá því hún heldur örugglega að hún sé að borða það sama og við hin :-) Hlakka til að fara að gefa henni að gefa henni að borða grauta því hún er svo áhugasöm um það sem við borðum. Ætli við byrjum ekki á hrísmjölsgraut um miðja næstu viku þegar hún er orðin alveg 5 mánaða.
Kolla er því farinn að sitja oftast í venjulegum stól við matarborðið og Inga María situr þá í barnastólnum. Gallinn við þetta er aðalega sá að venjulegu stólarnir okkar eru orðnir ansi skítugir því hún Kolbrún er nú ekkert of hreinleg við borðið.