April 16, 2002
Inga María er fimm mánaða

Inga María er fimm mánaða í dag hrikalega líður tíminn hratt. Hún átti að fara í fimm mánaða skoðun í gær en ég frestaði tímanum þar sem hún var með smá kvef og konan í ungbarnaeftirlitinu vill ekki fá börnin með kvef til sín (skil ekki að hún fái nokkur börn í skoðun á veturnar!!). Í staðinn fékk Inga María graut í fyrsta sinn í gær. Henni fannst þetta nú voðalega skrítið og gretti sig öðru hvoru en borðaði samt ágætlega af grautnum. Það varð nú ekki til að hún svæfi neytt vel samt og hún var alltaf að vakna og fá sér sopa í nótt en Kolla var upp í hjá okkur líka svo kannski var hún að vakna við það. Kolla svaf þvert á koddunum okkar beggja svo við foreldrarnir erum nú alveg lurkum laminn!! Vonandi líður kvefið hennar Kollu hjá sem fyrst svo hún fari að sofa betur og við þar með líka.
Kolla datt í gær. Við vorum að rabba saman inn í herberginu hennar Kollu, ég og Matti, og Matti lá á gólfinu. Kolla var á vappi í kringum okkur og ætlaði að fara yfir fæturnar á pabba sínum en datt um þær og á stólinn sinn. Hún fékk skurð á kinnina og Matti fór með hana upp á slysó. Það þurfti nú ekki að sauma heldur var sárið límt saman svo núna er hún með stórann plástur á annarri kinninni.

Posted by gydaa at April 16, 2002 09:54 AM
Comments