Þar sem að Inga María er ný farinn að borða datt mér í hug að deila með ykkur vefsíðum sem mér finnst áhugaverðar um þessi mál. Fyrri vefsíðan er heimasíða Sears hjónanna. Ég hef lesið tvær bækur eftir þau og töluvert af efni þeirra á vefnum og líkar mjög vel við það sem þau skrifa. William Sears er barnalæknir og Nancy er hjúkrunarfræðingur og saman eiga þau 8 börn og einhver barnabörn. Vefurinn þeirra er mjög góður upplýsingavefur almennt en í dag eru það upplýsingar um að byrja gefa börnum að borða sem ég vil benda sérstaklega á.
Hinn vefurinn er vefur Kanadísks læknis Dr. Jack Newman sem ég hef mjög oft séð vitnað í á vefnum en hef lítið lesið eftir sjálf og var eiginlega bara að sjá þessa grein í fyrsta sinn sjálf áðan. Hann hefur mjög sterkar skoðanir á brjóstagjöf og því finnst mér mjög áhugavert að lesa hans efni. Þessi síða er ekki alveg eins og allar aðrar um þetta efni og sumt meira að segja stangast á við annað sem ég hef lesið!! þannig að ég leifi mér nú að taka sumum hlutum þarna með vissri varúð svo sem að ekki sé nauðsynlegt að bíða í ákveðna daga milli nýrra tegunda matar svona til að byrja með.
Jæja þá er ég farinn af stað labbandi til Evu og mér sýnist að þá sé einmitt að byrja að rigna!!! Heppinn er ég.