Þetta er búinn að vera voðalega góð helgi. Í gær bauð ég þjónustufulltrúunum úr vinnunni til mín og var með uppáhaldssúpuna mína í matinn mmm namm namm. Það var voðalega gaman að hitta þær og að sitja og kjafta. Matti fór til foreldra sinna með Kollu og Áróru en Inga María var hjá okkur og var bara mjög góð. Hún sat hin ánægðasta yfir matnum og horfði á okkur kjafta saman og svo sat hún bara hjá okkur inn í stofu. Þegar Matti kom heim var hann með hana en hún vældi öðru hvoru á hann en brosti svo út yfir eyru um leið og hún kom aftur fram í stofu til okkar, alger snúlla.
Í hádeginu í dag buðum við foreldrum okkar og systkynum í afganga af súpunni (nóg til sko) og það er alltaf svo gaman að hafa alla saman. Matti og Stebbi horfðu svo á leikinn (Arsenal eitthvað) en fóru samt fyrst í bíltúr á nýja sportbílnum hans Stebba. Arsenal vann leikinn sem var ekki rétta niðurstaðan fyrir okkar menn (Liverpool), sko Matti segðu svo að ég hlusti ekki á þig ha!!! Við fórum svo í göngutúr og Matti sýndi mér húsið sem Eggert og Hildur voru að kaupa sér íbúð í. Veðrið var alveg yndislegt og svo hittum við líka strák sem var að vinna með Matta í Stefju mig minnir að hann heiti Svenni en er samt ekki alveg viss!! Kolla hafði voðalega gaman að því að hlaupa á undan okkur, hún er alveg agaleg með þetta að hlaupa burtu frá manni þegar maður er úti með hana. Þegar við vorum hjá Leikskólanum hennar þá tók hún á rás í áttina að húsinu hennar Gerðu systur mömmu. Ég og Matti settumst bara niður og ákváðum að hún myndi snúa við eftir smá stund (en það eru engar bílagötur alveg við) en hún bara hljóp og hljóp og var á endanum komin í hvarf sem okkur leyst nú ekki á svo Matti hljóp á eftir henni töluverðan spöl.
Í kvöldmatinn höfðum við svo restina af súpunni :-) og Inga María fékk hafragraut (svona Gerber barna hafragraut) í fyrsta sinn. Henni fannst hann nú töluvert betri en rísmjölsgrauturinn og ég tala nú ekki um sveskjumaukið sem ég gaf henni púff hvað henni fannst það hræðilegt. Ég bauð henni samt upp á það 3 kvöld í röð (má sko geyma krukkuna opna í ca 3 daga) því ég hef áhyggjur af hægðunum hjá henni á rísmjölsgraut því hann er svo stemmandi. Kolla vildi alls ekki leifa mér að mata Ingu Maríu og tók við skeiðinni og mataði systur sína svona mjög gott sagði hún við hana í hverri skeið. Matti náði mynd af henni sem hann mun setja á vefinn okkar.
Áróra er búinn að vera að leika við vinkonur sínar í allan dag en hefur samt ekki farið úr náttfötunum í allan dag!! Þannig að það var fljótlegt hjá henni að hátta sig í kvöld :-)