April 26, 2002
æi voðalega notalegt hjá mér

æi voðalega notalegt hjá mér núna. Inga María er sofandi úti í vagni og Kolla er á róló mmm þögn og ró í húsinu og ég sit hér með tebolla og les póstinn minn.
Það er voðalega fallegt veður úti sól og heiðskýrt en doldið kalt svo ég setti Kollu í útigalla úti á róló og Ingu Maríu líka í vagninn. Ég og Inga María fórum í smá göngu eftir að hafa skilið Kollu eftir á róló og hittum Eggert, Hildi og Auði. Auður er orðin voðalega stór og farinn að labba um allt. Þau fullorðnast svo við það að labba :-) æi þessi grei eru svo stuttan tíma lítil !!
Í gær (sumardaginn fyrsta) fórum við stelpurnar með Kötu og Eyjólfi og Hafdísi og Veru (frænkum Eyjólfs) í húsdýragarðinn þar hittum við Guðný og Pétur og Kormák og skemmtum okkur mjög vel. Kata var svo sniðug að smyrja nesti sem var mjög gott. Kollu fannst gaman að skoða dýrin og hlaupa um og leika sér. Hún var máluð eins og kisa en held hún hafi nú ekki alveg fattað það því stelpurnar sem voru að mála voru ekki með spegla til að sýna krökkunum afraksturinn. Ég tók samt mynd af henni svo ég sýni henni bara myndina þegar Matti setur hana inn í tölvuna :-) Kolla steinsofnaði í bílnum á leiðinni inn. Matti bara hana inn og eftir smá stund fór hann upp og skipti á kúkableiju og hún steinsvaf yfir því líka!! Inga María aftur á móti svaf í vagninum í garðinum og svo glápti hún á allt fólkið þess á milli og bara lá í vagninum sínum allan tímann voða góð.
Jæja þá er ég að hugsa um að gerast dugleg og setja í þvottavél enda búinn að vinna þau afrek í dag að setja í uppþvottavélina og taka úr henni tvisvar ví (þ.e. taka úr henni áður en ég setti í hana og svo aftur þegar hún var búinn ekki þvo tvær fullar uppþvottavélar í dag sko).

Posted by gydaa at April 26, 2002 12:20 PM
Comments