Kominn vika síðan ég skrifaði síðast voðalega líður tíminn hratt!!
Ég var vakinn í morgunn við söng og gleði einhvern veginn var ég ekki jafn glöð og stúlkan sem söng hástöfum en svona getur maður verið vanþakklátur. Kolla var sem sagt vöknuð og stóð frammi á gangi og söng veit ekki hvað hún var búinn að vera vakandi lengi en ég rumskaði ekki þegar hún fór fram úr!!
Jæja best að renna yfir síðustu viku.
Sunnudag: Fórum í Perluna og fengum okkur ís. Það var hræðilega mikið rok úti svo maður hljóp eiginelga frá bílnum og inn!! Kollu fannst gosbrunnurinn æðislega flottur og svo er svo gaman að hlaupa hring eftir hring í Perlunni!! Matti stakk meira að segja upp á að við færum eitthvað´!! Konan hans var nú ánægð með það. Keyrðum svo aðeins um og skoðum t.d. leikskólann sem Matti var á þegar hann var lítill :-) Fórum svo til tengdó og stelpurnar fengu sumargjafir frá þeim og Jónu Dóru voða fínar.
Mánudagur: Fórum á kynningarfund í leikskólanum hennar Kollu. Auk okkar voru foreldrar 2 annarra barna!!!! Ótrúlegt að fólk skuli ekki mæta á svona kynningar. Leikskólastjórinn sagði okkur að það væru 20 börn að byrja í sumar/haus þannig að það vantaði ansi marga foreldra. Kolla fer á Bangsadeild mynnir mig (Matti þú verður að leiðrétta mig ef þetta er vitlaus deild). Mamma kom og var hjá stelpunum á meðan við fórum á kynninguna. Inga María kúkaði langt upp á bak á meðan svo þetta var skemmtileg klst sem mamma fékk að passa barna barnið fór aðalega í að þrífa hana hátt og lágt og finna ný föt á hana :-) Annars sagði mamma að hún hefði verið mjög góð en þær sátu nú allar við gluggan og veifuðu okkur þegar við komum sem okkur fannst nú ekki góðs viti en mamma fullyrti að það hefði bara verið því Kollu finndist svo gaman að sjá okkur koma.
Jæja verð að fara að sækja Kollu á róló skal reyna að klára þetta á eftir ef ég fæ hana til að leggja sig.