Við erum búinn að eiga voðalega góða helgi. Í gær fórum við til mömmu og pabba í hádeginu eins og venjulega og svo fór Matti á Players að horfa á Liverpool og skruppum við stelpurnar í Smáralindina á meðan. Ég var alger bjáni og gleymdi að taka veskið mitt með mér og Kolla grét nú mikið yfir því að það skildi kosta í Barnalandið og við komumst því ekki þangað inn!! Við fórum samt í Skífuna og Kolla fékk að hlusta á lög með heyrnatóli og horfa á stráka spila tölvuspil, voða gaman. Svo fórum við í Eymundsson og skoðuðum bækur og hún fékk að fara í bílinn fyrir utan hagkaup (svona bíll sem maður setur pening í til að hann hreyfist). Hún hefur aldrei prófað að hann hreifist svo hún var hin ánægðasta að vera í honum án þess að ég væri með pening. Svo sóttum við Matta og fórum heim í garðinn okkar. Það var yndislegt veður í garðinum. Mér hafði fundist svo mikið rok þangað til ég kom heim til okkar því það er svo skjólsælt í garðinum okkar. Nágrannar okkar voru búinn að leigja vélklippur og klipptu trén á milli garðanna bæði sín megin og okkar megin fyrir okkur og svo klippti Matti niður rósarunnann og ég vann í beðunum. Stelpunum fannst líka voða gaman að leika sér í garðinum. Matti fór svo í fótbolta en ég grillaði hamborgara fyrir okkur Kollu alveg sjálf, hrikalega dugleg en reyndar skrúfaði ég vitlaust fyrir gasið!! en Matti lagaði það þegar hann kom heim.
Í dag svaf ég út eða sko til hálf 11 voðalega notalegt. Við fengum okkur svo hádegismat og Stella, Ásgeir og Þórður komu til okkar að lána okkur sög. Matti, Þórður og Ásgeri söguðu svo niður 2 aspir í garðinum okkar og grófu upp stofninn af rósatrénu. Hrikalega duglegir!! Þau fóru svo á siglfirðingakaffi en ég og Matti héldum áfram að vinna í garðinum á meðan stelpurnar sváfu. Ég er búinn með tæplega hálft blómabeðið og Matti sópaði saman öllum greinum og laufblöðum og fór með allt draslið á sorpu. Við kíktum svo í Garðheima og síðan í mat til Stellu og Ásgeirs. Voð borðuðum rosalega góðan lax og silung mmm namm namm.