Það var nú ekkert voðalega hlýtt í gær en þar sem við höfum farið út eftir lúr í nokkra daga þá vildi Kolla náttúrulega gera það. Við klæddum okkur bara vel og fórum út. Ég klóraði smá í beð og Kolla lék sér. Inga María var fyrst inni með Áróru og Hrafnhildi sem voru að læra heima en kom svo út til okkar.
Við fórum svo í RV að kaupa bleijur en gekk ekki betur en svo að ég gleymdi veskinu heima!!! Maðurinn á kassanum geymdi vörurnar mínar meðan ég skutlaðist heim eftir veskinu og svo fórum við og sóttum Matta í vinnuna. Þvílíkur lúxus að hann var búinn að vinna klukkan 5!!! Vonandi heldur Davíð áfram að fara í ræktina með honum svo hann geti farið svona snemma.
Áróra var með eina holu og þarf að koma aftur til tannlæknisins 21. maí þetta er í fyrsta sinn sem það þarf að gera við eitthvað hjá henni. Henni kvíður doldið fyrir sprautunni sem er skiljanlegt. Það voru líka teknar myndir af tönnunum til a sjá hvort hún þurfi tannréttingar þegar hún eldist og hvenær hægt sé að byrja á þeim. Niðurstaðan var sú að hún þarf tannréttingar en fyrst þurfa fjórar fullorðins tennur að koma niður og læknirinn spáir því að þær komi ca 12 ára og fyrr er því ekki hægt að byrja tannréttingarnar. Hún mun því örugglega vera með spangir á unglingsárunum einmitt það sem pabbi hennar var hræddur um því að hann þurfti þess og vildi forða henni frá því. En skil ekki af hverju þar sem að hann eignaðist svo góða kærustu á unglingsárunum og einmitt með spangir þá :-Þ