Tölvan mín fraus í dag þegar ég var að senda langa dagbókarfærslu með öllu um síðustu daga. Sjáum til hvað ég nenni að skrifa núna ég var nefnilega hálftíma í morgun að skrifa það sem týndist!!
Föstudagur:
Þá kom Dagbjört og þreif mmm yndislegt að koma heim í allt hreint og fínt og hreingernignarlyktina á móti sér!! Ég fór og keypti strigaskó og stígvél á Kollu á meðan. Kolla óx nefnilega upp úr gömlu stígvélunum á einni nóttu!! Hún hafði verið í þeim í ullarsokkum en svo næsta dag kom ég henni ekki í þau nema án ullarsokka. Við mælingu á fótnum á henni kom stærð 24 en allir skórnir hennar eru númer 23 þannig að það er ekki nema von að þeir hafi verið of litlir. Reyndar virðast Steinar Waage skórnir frá mömmu vera fínir á henni ennþá þó þeir séu nr 23.
Laugardagur:
Tengdaforeldrar mínir komu og tóku Kollu með sér um 3 leitið og þá röltum við Matti og Inga María að kjósa í góða veðrinu. Það var erfitt að fara inn aftur og undirbúa komu gestanna. Matti fór samt í eldhúsið þessi elska á meðan konan hans fór í sturtu og að hafa sig til!!! Það var síðan virkilega gaman að hitta alla og bara allt. Maturinn hepnaðist vel og allir náðu vel saman og ég held bara að allir hafi skemmt sér vel allavegana skemmti ég mér mjög vel :-) Kolla kom heim um níu og var sko ekkert smá ánægð að sjá fullt að gestum. Hún náttúrulega lék á alls oddi og söng og hoppaði um kát að fá fullt af athygli. Hún ætlaði nú aldrei að sofna og eftir að hún var búinn að liggja í rúma klukkustund og kalla og kalla og ótal ferðir foreldra hennar að rétta henni duddur sem hún henti um allt herbergi þá lagðist Matti hjá henni í smá stund og þá náði hún loks að slaka á og sofnaði á fáeinum mínútum.
Sunnudagur:
Ásgeir og Stella sóttu Kollu um hádegið svo hún væri ekki að hanga í afmælisgestunum. Þau skutluðu líka Áróru heim frá pabba sínum en hún var búinn að vera þar síðan á fimmtudag og reyndar búinn að vera fárveik á laugardeginum. Sem betur fer var hún heldur hressari á sunnudeginum en samt ennþá með hita. Hún gat samt notið afmælisins þannig að allt fór vel. Áróra skreitti fínu kökuna sína með Harry Potter dóti og kom það mjög vel út. Það mættu 11 krakkar af 21 sem var boðið og fannst okkur það nú doldið lítið þar sem að enginn hafði afboðað sig!! Við áttum því nóg af pitsu afgöngum. Krakkarnir virtust skemmta sér vel og allt fór vel fram. Kolla skemmti sér mjög vel með Ásgeri og Stelllu en þau fóru í heimsókn til Ásmundar og Hörpu. Allir voru sem sagt mjög ánægðir með þessa helgi en doldið þreyttir samt.
Í gær var Áróra heima að jafna sig eftir veikindin en Kolla ég og Inga María fórum í lautarferð með Sírrý, Heiðu, Halldóru og dætrum (þ.e. dætrum þeirra allra ekki bara dætrum Halldóru!!). Við hittumst heima hjá Sirrý í Ásahverfinu í hafnarfirði og löbbuðum svo í áttina að vatninu sem er þarna rétt hjá. Þetta var nú ekki mjög auðveld ganga. Fyrsta lagi voru göngustígarnir úr möl og erfitt að ýta tvíburavagninum í gegnummölina þannig að ég endaði með að draga hann. Svo endaði göngustígurinn sem við völdum þannig að við komumst ekki áfram með vagnanna. Við urðum því að snúa við og völdum annan göngustíg og hættum svo við það en nenntum ekki alla leið til baka til að fara þriðju leiðina og fórum sem leið lá yfir gras, holt og hóla :-) Það var því mjög notalegt að setjast niður og borða nestið okkar. Kolla var búinn að hlaupa um allt og ég oft á eftir henni svo hún færi nú ekki of langt frá okkur og til að hinar þyrftu nú ekki að bíða of mikið. Meðan við borðuðum nestið okkar og kjöftuðum hljóp hún um allt og aðstoðaði fólk sem var að vinna við að planta trjám rétt hjá okkur. Samt spurning hvort að fólkinu hafi fundist mikil hjálp í henni en hún skemmti sér allavegana vel :-) Við vorum svo fljótar að labba til baka því við fórum aldrei mjög langt frá heimili Sirrýar fórum aðalega bara í einvherja hringi sko!!
Mánudagur:
Stebbi kom svo í mat í gærkvöldi og hjálpaði okkur að borða meira af pitsunum og pulsur líka reyndar enda heimilisfólkið orðið doldið leið á pitsum!!
Í morgun á róló var einhver strákur að hrekkja Kollu og lamdi hana með bíl og aðra stelpu líka. Hún hágrét þegar ég sótti hana (hafði gerst stuttu áður) og rólókonan sagði mér að hin stelpan hefði fengið voða mikinn sand í augun en Kolla hefði samt meitt sig líka. Kolla er svo búinn að tala um þetta í allan dag aftur og aftur. Strákur má ekki slá Kollu segir hún aftur og aftur upp úr þurru. Vonandi verður hún ekkert skelkuð að fara á róló á morgun. Við erum svo búnar að vera doldið úti í garði í dag og bara dunda okkur úti og inni.
Inga María að væla svo ég hætti hér.