May 29, 2002
Við áttum voða fínann dag

Við áttum voða fínann dag í dag. Kolla fór á róló í morgun kát og hress. Ég var pínu kvíðinn eftir gær daginn því hún talaði um strákinn sem sló hana í allan gærdag. Eftir hádegið fórum við svo í húsdýragarðinn með Sirrý, Heiðu, Evu Mjöll og börnum. Það var voðagaman að fara í húsdýragarðinum. Kolla skemmti sér virkilega vel. Við borðuðum pulsur og svo fengu krakkarnir kremkex. Kolla lék í klifrugrindinni. Hún er orðin miklu frakkari að príla í henni (barnakastalanum ekki stóra skipinu) og renna sér niður rennibrautina. Við skoðuðum svo dýrin. Hænunum leist mjög vel á kexið hennar Kollu og voru orðnar svo ágengar að Kolla var orðin dauðhrædd og vældi í mér að halda á sér. Það var nú voðalega fyndið þó að Kollu greiinu hafi nú ekki fundist það :-)
Við löbbuðum svo til Ingu ömmu og stoppuðum stutta stund hjá henni. Hún var hress en þekkti mig nú ekki. Fannst samt voðalega gaman að sjá stelpurnar og var mjög ánægð að heyra að þessar stelpur væru barnabörn Gunnu hennar :-)
Núna er Matti farinn að sofa og ég sit hérna í ferðatölvunni hans jibíí voða fjör :-) samt voðalega erfitt að pikka á hana því ég rekst alltaf í músina og bendillinn fer þá eitthvert allt annað en hann á að vera!! Jæja Law and Order er að klárast svo best að ég fari að sofa líka
Góða nótt

Posted by gydaa at May 29, 2002 11:40 PM
Comments