May 30, 2002
Ég fékk nú bara hálftíma

Ég fékk nú bara hálftíma næði í morgun. Fór svo að sækja Kollu og við ákváðum að rölta og sækja Áróru í skólann því hún var búinn klukkan 12 í dag. Við gerðum það og fórum svo í bakarí og settumst niður á túninu hjá kirkjunni og borðuðum. Kolla hljóp samt aðalega um og týndi fífla en borðaði mjög lítið af brauðinu sínu. Konan í sjoppunni við hliðina á bakaríinu tuðaði nú yfir því að ég væri að láta hana strauja kort fyrir einni kók nú jæja ég skal bara versla annars staðar svo ég trufli hana ekki með kortinu mínu aftur!!
Við fórum svo á bókasafnið og stelpurnar lituðu og skoðuðu bækur og ég skoðaði líka bók. Tókum svo eina bók hver með okkur heim. Setti Kollu í hvíld og Inga María var að sofna úti í vagni svo smá hvíld hjá mér sem fer nú að vísu mest í að svara Áróru!!

Posted by gydaa at May 30, 2002 03:50 PM
Comments