Jæja þá er kominn sunnudagur ooo þeir eru alltaf svo notalegir. Venjulega er það nú af því að ég fæ að sofa út en manninum mínum fannst ég búinn að sofa nóg klukkan hálf níu!!! Spurning hvort að honum finnist hann vera búinn að sofa nóg hálf níu þegar HM er búið mmmm!!! En jæja nú sit ég hér með kaffibolla (kaffi en ekki te af því að það er meira koffín í því og mig langar svo í kók!!) og Inga María er sofandi úti í vagni og Kolla að horfa á barnatímann hérna við hliðina á mér. Matti er að horfa á England - Svíþjóð og vinna í tölvunni sinni hann er svo duglegur þessi elska.
Inga María er orðin voðalega dugleg að stíga í fæturnar sínar, hún stendur nú ekki lengi en pompar á rassinn þegar hún fær nóg. Ég var að reyna að sýna henni hvernig maður getur haldið í borðið í gær en hún skildi nú ekkert hvað ég átti við og lamdi bara í borðið eins og trommu. Kollu finnst líka rosalega gaman að tjútta við hana og vill alltaf að ég sé að láta Ingu Maríu tjútta. Ingu Maríu finnst það nú líka gaman en samt bara í hófi sem er ekki alveg það sem Kolla hefur í huga :-)
Stór dagur á morgun þegar stelpan mín verður 10 ára. Hugsa sér að fyrir 10 árum lá ég á meðgöngudeildinni og var að safna saman þvagi uuuu það er nú notalegra að sitja hér :-) Annars er bráðum 10 ára stelpan mín hjá Hrafnihildi hún gisti þar í nótt.