June 03, 2002
Við erum búinn að eiga

Við erum búinn að eiga góðan dag.
Stelpurnar vöknuðu um átta (greinilega vitlaust styllt klukkan á dagbókinni því það sem ég skrifaði í morgun var skrifað 7:50 ekki 8:50) og Kolla færði Áróru pakkann sinn frá okkur og við sungum fyrir hana. Kolla fékk líka pakka sem Stella amma hennar hafði keypt handa henni. Ég pakkaði honum í alveg eins pappír og Áróru pakka. Áróra fékk Harry Potter legó kastalann frá okkur og erum við því bestu foreldrar í heimi :-) Hún var sem sagt mjög ánægð með pakkann sinn. Svo fékk hún líka pakka frá Stellu og Ásgeir. sem í var bolur og buxur og Harry potter myndaalbúm. Hún fékk svo líka flíspeysu frá Ingu ömmu.
Kolla fór svo á róló og Áróra dundaði sér með kastalann sinn.
Um hádegið hittum við svo Stellu, Ásgeri, Jónu Dóru og Þórð á Hard rock. Það var virkilega gaman að fara þangað og borða eins og alltaf. Áróra var mest spennt yfir að láta syngja fyrir sig og Kolla var sko rosa hissa yfir stjörnuljós ísinum hennar Áróru og söngnum hjá þjónunum. Kolla og meira að segja Inga María fengu svo líka ís (Inga María fékk nú samt ekki að borða sinn og mamma hennar ekki nema smá af vanilluhlutanum en Þórður græddi) en við hin fengum kaffi sem við þurftum reyndar að bíða doldið eftir. Vonandi voru Stella og Ásgeir því ekki allt of sein aftur í vinnuna. Við skemmtum okkur alla vegana allar vel.
Þegar við komum heim var Kolla yfir sig þreytt. Fyrst ætlaði ég ekki að láta hana leggja sig því klukkan var orðin svo margt en eftir að hún gerði ekkert nema væla þá fór ég með hana í rúmið og hún vældi smá þar og steinsofnaði svo.
Áróra fékk því klst í viðbót í friði með kastalann sinn. Eftir lúrinn skruppum við svo heim til mömmu og pabba að taka póstinn frá dyrunum og vökva blóm þannig að Áróra fékk smá frið í viðbót.
Núna er Áróra farinn út að borða með pabba sínum og fjölskyldu og fóru þau á Mcdonalds en þangað langaði Áróru mest. Kolla er aftur á móti að horfa á Mikka mús og Inga María að lúra þannig að það er best að ég fari að setja upp matinn í stað þess að hanga hér.

Posted by gydaa at June 03, 2002 06:57 PM
Comments