Ég skrifa orðið ans sjaldan hér inn en jæja datt í hug að það væri gaman að byrja aftur að skrifa lofa samt engu að það líði ekki dagar, vikur eða mánuðir á milli færslna :-)
Ég, Kolla og Inga María tókum okkur frí í dag. Byrjuðum daginn á leti til hádegis og fórum svo í smáralindina. Fengum okkur að borða á Fridays. Ég fékk mér BBQ kjúklingasalat sem var virkilega gott.
Röltum svo í Hagkaup og keyptum föt á stelpurnar enda voru vsk lausir dagar þar og ágætt að nýta slíka daga. Keyptum tvær peysur og einar buxur á Kollu og buxur á Ingu Maríu. Það var nú eiginlega bara Kollu sem vantaði föt en Inga María varð að fá eitthvað líka. Ég ætlaði nú að kaupa eitthvað á mig líka en var ekki alveg að nenna því þegar á reyndi með tvo brjálæðinga með mér :-)
Eftir að versla fórum við á Jóa fel kaffihúsið og keyptum okkur kökur. Það var eiginlega aðeins of mikið og var okkur öllum hálf illt í maganum eftir það!! Kunnum ekki stjórn á græðginni greinilega.
Fórum svo heim og eyddi svona klst í að taka lauf og greinar saman í garðinum. Ekki fer það beint vel með bakið!!
Núna eru stelpurnar að leika við kötju og ég sit hér í rólegheitum, þægilegt líf.
Hvað segi þið gott í dag? Ég er ennþá með þessa leiðinda pest. Var sko með hita á mánudaginn í síðustu viku (næstum 2 vikur síðan) er síðan búin að vera aum í hálsinum og er núna hrikalega kvefuð!! Er orðin voðalega þreytt á þessu er alveg komið gott takk fyrir vonandi á hitinn í ítalíu eftir að hjálpa til :-)
Já nú er ansi mikið farið að styttast í ferðina förum út á fimmtudagsmorgunin (eða kannski frekar miðvikudagskvöldið!!). Vélin fer í loftið 5:40 og ekki er hægt að tékka sig inn fyrirfram svo þeir hjá Heimsferðum mæla með að maður mæti rétt rúmlega 3 á flugvöllinn sem þíðir að maður er að vakna um hálf 2 eða jafnvel 1 sem er nú svona rétt rúmlega timinn sem maður fer að sofa!! Vonandi þíðir það að stelpurnar geti sofnað í flugvélinni. Við eigum að lenda um 11 og erum búin að fá okkur gistingu fyrstu tvær næturnar í bæ sem heitir Montecatini Terme og er þekktur fyrir heilsulindir. Er einhverskonar bláa lón Ítala og er því á öllum kortum þó að þetta sé ekki stór bær. Við erum sko búin að stúdera bæði hvaða vegi við eigum að keyra þangað og götukort af bænum svo við finnum hótelið erum nefnilega þekkt fyrir að villast í útlöndum :-Þ
Ég á eftir að vinna í 2 og hálfan vinnudag og svo er ég komin í 3 vikna sumarfrí vinn svo aftur í eina viku og aftur í frí í viku (löng vika þar sem að verslunarmannahelgin kemur inn í hana.
Jæja það er komin laugardagur og viti þið hvað ég er ekki að vinna :-Þ
Enda er áróra hjá pabba sínum annars hefði ég eflaust skotist í vinnuna í morgun!! En nú er farið að styttast í sumarfríið okkar 12 dagar ooo hvað mig hlakkar til.
Ég hef nú ekki verið sem hressust þessa vikuna. Var heima veik síðasta mánudag með tæplega 39 stiga hita var svo heima en hitalaus á þriðjudeginum fór í vinnu á miðvikudag en með hálsbólgu samt. Var svo orðin ansi hás á fimmtudeginum og nokkurnvegin raddlaus á föstudeginum!! Er með doldin hósta líka en hress að öðru leiti ja var reyndar orðin ansi slöpp í lok vinnudags í gær en ekkert alvarlegt.
Stelpurnar hafa verið hressar allavegana vonandi eiga þær ekki eftir að fá þessa pest. Áróra er búin að vera hjá pabba sínum síðan á mánudag og verður þangað til við förum út.
Við erum búin að panta okkur hótel fyrstu tvo dagana og bílaleigubíl var ég búin að segja ykkur það er ekki viss en loksins erum við búin að panta allt varðandi ferðina svo þess vegna er ég kannski orðin svona spennt :-)
Jæja ætla að sinna skvísunum vildi bara senda ykkur línu er að hugsa um að vekja Matta og draga hann á andrés andar afmælið í kringlunni áður en fyrsti leikur EM byrjar er það ekki fínt plan :-)
Takk fyrir að taka eftir Kata að laugardagspistilinn minn hefur vantað sökum mikillar vinnu að undanförnu :-)
Bara svo ég muni það þá ætla ég að setja hér inn að Inga María var svo til alveg hress í dag. Hún átti pínulítið erfitt með að vakna eftir lúrinn en ekkert sem ég hefði ekki þótt eðlilegt venjulega. Hún kúkaði meira að segja og það var ekki harðlífi enda búin að vera dugleg að borða sveskjurnar sínar :-)
Inga María er búin að vera slöpp síðdegis síðan á mánudaginn í síðustu viku. Það er eins og hún sé búin með alla orku eftir hádegið eða kaffileitið og vill bara sitja og hlusta á kasettu eða horfa á sjónvarpið eða bara sitja og stara út í loftið. Hún er hitalaus, kveflaus og eiginlega ber hún engin veikindamerki nema slappleika. Fór með hana til læknis á þriðjudaginn í síðustu viku eftir að hún var svona allan daginn. Hann fann ekkert að henni en sagði mér að láta endurmeta hana eftir nokkra daga ef þetta væri ennþá. Hún var svo mikið betri daginn eftir en alveg búin að vera síðdegis þegar ég sótti hana á fimmtudeginum. Var svo fín á föstudeginum en búin að vera síðdegis á laugardegi. Hún var aftur slöpp síðdegis á sunnudeginum reyndar ekki fyrr en um sex en hún tók líka lúrinn sinn seint á sunnudeginum. Ég fór með hana aftur til læknis á mánudeginum og hann vildi gefa þessu nokkra daga í viðbót og sjá hvort þetta væri bara pest að angra hana en ég átti svo að koma með þvagprufu til hans á fimmtudagsmorguninn. Hún var mjög slöpp síðdegis á þriðjudeginum en ég var mætt tvö í leikskólann að sækja hana á miðvikudaginn svo hún þyrfti ekki a vera svona slöpp í leikskólanum. Hún var þá auðvitað mjög fín á miðvikudag :-) Fórum samt með þvagprufu til læknisins. Það kom ekkert úr fyrstu rannsóknum en læknirinn sendi líka eitthvað í rannsókn sem við fáum niðurstöður úr í næstu viku. Hún var allt í lagi á fimmtudag held samt hún hafi verið eitthvað slöpp er samt ekki alveg viss!! Hún var mjög fín í gær svo kannski hefur þetta bara verið pest sem var lengi að fara úr henni. Sjáum til hvernig hún verður í dag. Hún hefur samt verið með harðar hægðir og kúkar oftast um kvöldmatarleitið og er oft heldur hressari eftir það. Læknirinn vildi því að við forðuðumst stemmandi mat og létum hana borða t.d. Sveskjur til að lina hægðirnar. Hún hámar í sig sveskjurnar með bestu lyst en var ekki mjög glöð við móður sína þegar hún vildi síður gefa henni aðra jógúrt dollu!! Sjáum til hvort að það hefur einhver áhrif að koma hægðunum í betra stand.
Að öðru leiti hefur vikan verið viðburðalítil. Það er opið hús í leikskólanum í dag hjá stelpunum 10-12 og við erum að fara þangað núna. Svo er áróra með vinahóp hálf 5. Jæja ætla að flýta mér af stað í leikskólann með halarófuna en Matti er í vinnuferð í dag og svo fylleríi í kvöld svo sé hann bara í fyrramálið yss nóg að gera að drekka hja drengnum!!
Laugardagspistilinn minn kemur víst einum degi of seint þar sem ég var á djammi á föstudagskvöldinu með vinnunni og stelpurnar í gistingu svo ég var ekkert hérna í tölvunni í gærmorgun.
Gallinn við að skrifa aðalega einu sinni í viku er að ég man aldrei almennilega hvað ég gerði í vikunni þarf að klóra mér vel í hausnum!! Aðalega bara vinna sofa hugsa um börn og heimili nema á fimtudaginn fór ég í bíó með Sirrý og tveim vinkonum hennar sáum 50dates eða eitthvað svoleiðs með Adam Sandler og þarna konunni sem ég man ekkert hvað heitir :-) allavegana fannst mér myndin góð og gott að komast aðeins út og auðvitað góður félagsskapur en ekki hvað.
Já á aðfaranótt þriðjudags kom Matti heim frá manchester eftir að hafa skemmt sér rosalega vel það var gott að fá hann heim þó að þessir fjórir dagar hafi reyndar gengið ótrúlega þægilega fyrir sig var ekkert orðin alveg brjáluð á að vera ein með skvísurnar :-) en verð að viðurkenna að ég hugsaði stundum vá svona var ég oftast fyrir bara ári síðan (ok matti kom þá heim yfir blá nóttina en það var ekki mikið meir). En það munar samt rosalega miklu að vera með árinu eldri börn.
Á föstudagskvöldið var sem sagt djamm með vinnunni (vorfagnaður). Fórum með rútu frá vinnunni minni klukkan 7 og eftir að keyra aðeins um svo fólk gæti drukkið nestið þá komum við í fjarðarkránna. Fengum fordrykk sem mér og engum sem ég talaði við fannst góður!! En svo fórum við í veitingarsalinn og settumst saman tekjudeildin ja eða þeir sem voru úr tekjudeild vorum bara 4 og 2 makar. Fengum mat sem var ekkert meira en allt í lagi en félagsskapurinn vann það vel upp :-) Víkingarnir sem héldu upp fjöldasöng öðru hvoru voru fínir og svo finnst mér alltaf svo gaman að svona fjöldasöng :-) Eftir það var happadrætti og söngur sem skemmtinefndin hafði samið en við fengum ekki vinning en ein úr deildinni minni fékk risa stóra körfu. Svo kom uu minnir að hann hafi heitið rúnar þór að spila og það var drukkið og djammað farið svo í bæinn og rölt milli staða og alltaf týndist fleira og flreira fólk úr hópnum og rúmlega 3 fórum við heim. Fínt kvöld.
Vaknaði klukkan 6 á laugardagsmorgninum og leið ógeðslega illa búin að sofa í ca 2 tíma og eyddi 3-4 tímum inn á klósetti hlít að hafa náð mér í einvherja pest á djamminu :-Þ Sofnaði svo loksins og lá í bælinu til að verða 2 og fórum þá til tengdó að sækja stelpurnar og þaðan á Amerikan stile að fá okkru þynkumeðal (djúsí hamborgara). Þaðan fórum við að redda næsta fylleríi hjá Matta (hljómum eins og alkahólistar!!) en hann hafði lofað að kaupa kassa af bjór fyrir fótboltaliðið sitt sem var að fara að keppa og djamma eftir leik. Þar sem að ríkið var lokað þá hófst úthringingar í ættingja um hvort fólk ætti bjór að lána okkur!! Mamma og pabbi lumuðu á 12 bjórum sem voru ekki runnir út (nokkrir sem fóru í ruslið við leitina) og Stebbi bróðir lánaði Matta rest. Keyrðum svo Matta á völlinn og fórum heim að slaka á. Inga Mara var voðalega þreytt eftir að hafa ekkert lagt sig og var sofnuð fyrir 8 og hefði alveg geta sofnað fyrr. Kolla fékk að vaka til 9 og horfa á lilo og stitch tilraun 626. Ég fór þokkalega snemma að sofa en vaknaði 4 og gat ekki sofnað fyrr en kallinn skilaði sér heim um hálf 6 fór fram og skammaði hann og svo aftur inn í rúm og svaf þá vel til svona hálf 8 þegar Inga María vaknaði og kom upp í til mín og þá loksins datt eiginmanninum í hug að koma sér í rúmið!!! Get ómögulega skilið það að vaka til hálf 8 en er ákveðin í að vekja hann um hádegi það er hans vandamál að hann fór ekki fyrr að sofa.
Er annar að reyna að þrífa aðeins er ekki beint að nenna því en íbúðin orðin ansi ömurleg eftir að konan sem þrífur hjá mér er búin að vera í nokkra vikna fríi og mér gengur voðalega hægt að gera þetta sjálf!! :-(
Jæja ætla að halda áfram að taka til á ganginum svo ég geti svo ryksugað ganginn.
Datt í hug að skella hérna inn laugardagspistlinum til póstlistans míns en Matti kvartar alltaf öðru hvoru um að ég skrifi ekkert svo ætla að muna eftir að henda laugardagspistlunum mínum hingað inn svo það komi þá eitthvað einu sinni í viku :-)
Ja sko eina fullorðna mannsekjan á heimilinu þó að ég getir bráðum farið að kalla Áróru fullorðna :-Þ en sem sagt Matti er í útlöndum í fjóra daga svo ég er án hans. Hann fór í fótboltaferð til Manchester að sjá Manchester united og Liverpool spila. Í gærkvöldið fóru þeir á stand up og á sunnudagskvöldið eiga þeir miða á Duran Duran tónleika og svo á mánudag er stefnan tekin á Liverpool borg þar sem Matti og Stebbi bróðir ætla að skoða heimavöll Liverpool (ætluðu að gera það í gær en af einhverjum ástæðum frestuðu þeir því). Þeir koma svo heim á mánudagskvöldið. Vonandi koma hryðjuverkamennirnir hvergi nálægt þeim :-(
Við stelpurnar höfum það mjög gott. Á sumardaginn fyrsta svaf ég út (ja til rúmlega 10 Inga María er alveg hætt að leifa mér að sofa lengur, Matti þarf alveg að vakta hana stannslaust því hún stelst upp og segist ætla að kúra hjá mér en er farinn að hoppa á mér eftir hálfa mín!!). Þegar ég kom niður fengum við okkur morgunmat og fórum út í garð í góða veðrið. Ég vann í beðunum og um eitt hjóluðum stelpurnar litlu af stað í átt að Hólmaseli. Við vorum nú bara komin fram hjá svona 4-5 húsum þegar ég snéri við með hjólin!! Kolla var að fá fyrsta tvíhjólið sitt og er að læra að nota pedalana og vældi yfir því í öðru hverju skrefi og Inga María var á þríhjóli með petala og vældi í takt við Kollu!! Áróra kvartaði svo og kveinaði yfir því að þurfa að fara út í göngutúr með okkur!! Foreldrarnir voru orðnir nett pirraðir og ákváðu að skila hjólunum og allir myndu ganga. Áróru var sagt að gangan myndi leiða okkur í Hólmasel þar sem væri skemmtun svo allir tóku gleði sína. Eina sem skyggði á gleðina var að kláru foreldrarnir höfðu ekkert hugsað um hádegismat svo börnin kvörtuðu og kvörtuðu um hungur við vorum ekki heldur með peningaseðla til að kaupa pulsur í básnum hrikalega klár. Svo föttuðum við að við höfðum gleymt að setja bleiju á Ingu Maríu og ég reyndi mikið að fá hana til að pissa í klósettið í hólmaseli en hún vældi og vældi og harðneitaði því. Það endaði náttúrulega með að hún pissaði í buxurnar svo ég og hún röltum af stað heim að skipta um föt en Matti fór með hinar í næstu sjoppu að kaupa samlokur handa þeim. Við Inga María vorum heila eilíf að rölta heim með stoppum að skoða hvern einasta stein og prik sem við löbbuðum fram hjá en það var svo sem allt í lagi í þessu yndislega veðri. Við keyrðum svo til baka þar sem ég nennti ekki að labba með hana til baka, hún vældi samt alla leiðina yfir því að við færum ekki labbandi enda var hún orðin hrikalega svöng og þreytt í ofan á lag. Við fórum fyrst í sjoppuna og fengum okkur samlokur og keyptum smá nammi líka og fundum svo restina af fjölskyldunni sem var þá búin að skemmta sér vel. Ég er alveg farinn að sjá kostina við að hafa skemmtanirnar svona í hverfinu þó mér hafi fundist það asnalegt í byrjun að hafa þetta ekki í bænum. Í bænum var maður í troðningi dauðhræddur að týna börnunum og rakst á einn og einn en börnin hittu engan sem þau þekkja. Þessar skemmtanir eru í raun mikið betri fyrir krakkana. Þau geta hlaupið um (eins mikið og maður þorir því með stóra tjörn við hliðina á sér!!) og hitta fullt af krökkum af leikskólanum/skólanum og nokkrar konur sem vinna á leikskólanum líka. Auðvitað er mikið skemmtilegra að leika sér að henda boltum, á trambolíni og í hoppikastala með vini sína með sér.
Eftir að ég kom til baka fórum við í garðheima og keyptum okkur klippur og til mömmu og pabba að ná í klippurnar okkar (öðru vísi klippur veit samt ekki um annað orð yfir þetta tæki!!) og Matti hófst svo handa við að klippa trén. Stelpurnar léku sér við barnabörn nágrannanna og ég hélt áfram í beðunum. Garðurinn er því betri en hann var fyrir utan að hann er troðfullur af greinum þar sem ekki var tími til að fara í sorpu og Matti ekki heima fyrr en í næstu viku svo þær verða eflaust þarna fram til næstu helgi en hvað um það!! Verður rosaflott þegar við erum búin að losa okkur við greinarnar og ef ég kæmist nú í að klára beðin (tók hálft stóra beðið og aðeins af beðunum fyrir framan hús) en það er sko nóg eftir þar og rigning alla helgina núna skv. spá!!
Dagurinn endaði svo að sjálfsögðu í grilli og rauðvíni og bjór og meiri bjór!! Matti fór í eitthvað kæruleysi yfir því að vera á leið til útlanda og því væri ágætt að hefja fyllerísferð á að fá sér nokkra bjóra. Allavegana tókst honum að fylla konuna sína (á 3 rauðvínsglösum og rúmlega einum bjór) og við bara tvö ein heima haldiði að það sé!! En við höfðum það allavegana gott saman :-)
Í gær þurfti ég bæði að keyra stelpurnar og sækja þær ágætt að ég átti einhverjar mínútur inni hjá vinnuveitandanum því mér tókst ekki að vinna 8 tíma og skutla og sækja. Gæti kannski tekist það ef ég væri mætt akkurat 8 á leikskólann en ég var mætt rétt rúmlega og mætti í vinnu 8:30 og fór svona 20 mín yfir 4 og var komin á leikskólann rétt fyrir 5. Ætli ég þyrfti ekki að borga 9 og hálfan tíma ef ég væri einstæð!! En gott að maður finnur fyrir því að kallinn geri eitthvað gagn ;-)
Á eftir förum við til mömmu og pabba og á morgun erum við líka búin að mæla okkur mót svo við ættum að hafa nóg fyrir stafni meðan kallinn er í burtu. Vilji þið pæla í því að fyrir ári þá var ég svo til alltaf ein en núna var ég virkilega með áhyggjur af 4 dögum yss hvað maður er bara einn stór vani.